Sigurrós Þorgrímsdóttir4 BIiUab0 OoTWw MmD VBb EeDlOyK f t3b v
| Sigurrós Þorgrímsdóttir (SÞorg) | |
| Fæðingardagur: | 16. apríl 1947 |
|---|---|
| Fæðingarstaður: | Reykjavík |
| Flokkur: | |
| Þingsetutímabil | |
| 2005-2007 | í Suðvest. fyrir Sjálfst. ✽ |
| ✽ = stjórnarsinni | |
| Tenglar | |
| Æviágrip á vef Alþingis | |
Sigurrós Þorgrímsdóttir (fædd 16. apríl 1947) er fyrrum bæjarfulltrúi í Kópavogi, fyrrum alþingismaður og var um tíma formaður Breiðabliks.
Þegar Gunnar I. Birgisson tók við embætti bæjarstjóra í Kópavogi sagði hann af sér þingmennsku og Sigurrós sem fyrsti varamaður fór á þing í hans stað 1. október 2005. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningarnar 2007 hafnaði hún neðar á listanum en hún sóttist eftir og í kjölfarið dró hún framboð sitt til baka.
Hún hefur verið formaður skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi síðan 1998.
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- „Alþingi - Æviágrip: Sigurrós Þorgrímsdóttir“.